15 desember 2022
Auglýst eftir umsóknum um styrki í þágu farsældar barna
Mennta- og barnamálaráðherra auglýsir eftir umsóknum um styrki frá íslenskum félagasamtökum til verkefna sem varða farsæld, þar á meðal menntun, vernd og réttindi barna, í þjónustu við börn og fjölskyldur, m.a. forvarnir og fyrirbyggjandi aðgerðir og þjónustu er miðar sérstaklega að börnum í viðkvæmri stöðu.