04 janúar 2024
Styrkir Samtökin ´78
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur veitt Samtökunum ´78 styrk að upphæð 20 milljónum króna. Styrknum verður meðal annars varið í að veita einstaklingsráðgjöf, bjóða upp á stuðningshópa, virknihópa og sinna sértækum stuðningi við flóttafólk sem og eldra fólk.