26 október 2013
Innanríkisráðherra ávarpaði aðalfund Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
<p>Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra ávarpaði í gær aðalfund Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem haldinn var í Reykjavík. Ráðherra hefur undanfarnar vikur sótt marga aðalfundi landshlutasamtaka sveitarfélaga, meðal annars hjá Eyþingi, Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga.</p>