25 maí 2005
Kosið um sameiningu í Skorradal þann 4. júní
Hreppsnefnd Skorradalshrepps hefur ákveðið í samráði við samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaga í Borgarfirði norðan Skarðsheiðar, að atkvæðagreiðsla um sameiningu hreppsins við Borgarfjarðarsveit, Borgarbyggð, Hvítársíðuhrepp og Kolbeinsstaðahrepp fari fram 4. júní.