29 júlí 2016
ESB opnar tollfrjálsa innflutningskvóta fyrir tilteknar sjávarafurðir frá Íslandi
<p>Hinn 1. ágúst nk. mun Evrópusambandið (ESB) opna tiltekna tollfjálsa innflutningskvóta fyrir fersk og kæld karfaflök, frosinn leturhumar, heilfrysta síld og niðursoðna þorsklifur, samkvæmt viðbótarbókun við fríverslunarsamning Íslands og ESB frá 1972 sem undirrituð var 3. maí sl. Samningaviðræður um kvótana fóru fram samhliða viðræðum um framlög til Uppbyggingarsjóðs EES.</p>