29 apríl 2013
Kosningavefur innanríkisráðuneytisins mikið heimsóttur
<p>Kosningavefur innanríkisráðuneytisins, <a href="http://www.kosning.is">kosning.is</a>, var mikið heimsóttur í aðdraganda alþingiskosninganna og á kjördaginn 27. apríl. Tæplega 40.000 heimsóttu vefinn síðustu tvær vikurnar fyrir kosningarnar, þar af um 17.000 á kjördag.</p>