18 júlí 2017
Mál nr. 4/2017. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
<p align="justify">Með kæru 7. febrúar 2017 kærði Garðlist ehf. innkaup Isavia
ohf. á grisjun trjáa í Öskjuhlíð. Kærandi krefst þess að varnaraðila verði gert
að bjóða innkaupin út, nefndin lýsi samning varnaraðila við Hreina Garða ehf.
óvirkan, nefndin gefi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda
og varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað.</p>