08 febrúar 2016
Fiskveiðinefndir Íslands og Grænlands funduðu í Nuuk
<p>Á fundi fiskveiðinefnda þjóðanna sem haldinn var í Nuuk 2.-3. febrúar var m.a. farið yfir stöðu sameiginlegra fiskstofna, skipst á gögnum um veiði, fjallað um samstarf þjóðanna á alþjóðavettvangi og sameiginlega rafræna afladagbók. Jafnframt var rætt almennt um vísindasamstarf þjóðanna sem hefur aukist jafnt og þétt hin síðari ár.</p>