13 nóvember 2012
Ný skýrsla starfshóps um samþættingu menntunar og atvinnu
<p>Starfshópur um samþættingu mennta- og atvinnumála, sem settur var á laggirnar á grundvelli þingsályktunar um sama efni í júní 2011, hefur skilað skýrslu með tillögum sínum til forsætisráðherra. Tillögurnar snerta skilvirkni menntastefnunnar, aukið vægi verk- og tæknináms í íslensku menntakerfi, samstarf atvinnulífs og skóla og samráð um þróun menntunar.</p>