17 mars 2016
Ísland fjallar um kynbundið ofbeldi á 60. fundi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna
Í dag stóðu íslensk stjórnvöld, í samstarfi við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og Stígamót, fyrir viðburði um kynbundið ofbeldi á kvennanefndarfundi Sameinuðu þjóðanna í New York. Hátt á annað hundrað manns sótti fundinn.