16 september 2012
Verðlaunahafar á Degi íslenskrar náttúru
<p>Umhverfis- og auðlindaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, veitti í dag í tilefni af Degi íslenskrar náttúru, Rúnari Pálmasyni, blaðamanni á Morgunblaðinu, Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Við sama tækifæri veitti hún Hjörleifi Guttormssyni, Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti.</p>