02 maí 2018Skýrsla starfshóps um tollasamning og mótvægisaðgerðir stjórnvaldaMeð vísan til umræðu í fjölmiðlum um mótvægisaðgerðir vegna tollasamnings Íslands við Evrópusambandið vill atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið koma eftirfarandi á framfæri.
02 maí 2018Grunnskólanemar úr Árbæjarskóla funduðu með forsætisráðherraÍda Marín, Selma María, Elín Rósa og Astrid Eyberg, grunnskólanemar úr Árbæjarskóla, funduðu með Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, í morgun.
02 maí 2018Vinna hafin við mótun nýsköpunarstefnuÞórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála, iðnaðar og nýsköpunarráðherra, lagði á síðasta ríkisstjórnarfundi fram tillögu að gerð heildstæðrar nýsköpunarstefnu fyrir Ísland. Kveðið er á um mótun stefnunnar í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og er hún nú formlega hafin.
02 maí 2018Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis hafin Hægt er að greiða atkvæði á sendiskrifstofum og hjá ræðismönnum Íslands erlendis.
02 maí 2018Kjartan Bjarni Björgvinsson, héraðsdómari, stýrir óháðri úttekt á málum á sviði barnaverndarAð tillögu Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, hefur verið ákveðið að fram fari óháð úttekt á tilteknum málum á sviði barnaverndar hér á landi, sem verið hafa til umfjöllunar í velferðarráðuneytinu og hjá velferðarnefnd Alþingis.
02 maí 2018Niðurstaða úthlutunar á tollkvótum frá Evrópusambandinu á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið 1. maí – 31. desember 2018Föstudaginn 20. apríl 2018 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópusambandinu samkvæmt reglugerð nr. 318/2018 fyrir tímabilið 1. maí – 31. desember 2018.
02 maí 2018Ingvar J. Rögnvaldsson settur ríkisskattstjóriFrá og með 1. maí 2018 hefur Ingvar J. Rögnvaldsson verið tímabundið settur til að gegna embætti ríkisskattstjóra.
02 maí 2018Samstarf við öflug ungmennasamtökLandsamband ungmennafélaga, LUF, eru regnhlífasamtök frjálsra félagasamtaka ungs fólks á Ísland. Á dögunum skrifuðu fulltrúar LUF undir samstarfssamning við mennta- og menningarmálaráðuneytið sem styrkja mun starfsemi þess næstu þrjú árin.
02 maí 2018Íslenskur talgreinir í loftiðVefgátt fyrir nýjan íslenskan talgreini var opnuð á máltæknikynningu í Háskólanum í Reykjavík á dögunum. Á síðunni getur fólk kynnt sér talgreiningu og upplifað hvernig hún snýr talmáli í ritmál.