31 ágúst 2004
Álit nefndar um íslenskt viðskiptaumhverfi
Nefnd um íslenskt viðskiptaumhverfi sem viðskiptaráðherra skipaði í janúar s.l. hefur lokið störfum. Nefndinni var m.a. ætlað að taka fyrir hvernig bregðast mætti við aukinni samþjöppun í íslensku viðskiptalífi og með hvaða hætti þróa ætti reglur þannig að viðskiptalífið væri skilvirkt og nyti trausts.