24 júní 2009
Úttekt á tæplega 300 opinberum vefjum
Um þessar mundir stendur forsætisráðuneytið fyrir úttekt á opinberum vefjum með tilliti til rafrænnar þjónustu. Úttektin nær til vefja ríkisstofnana, ráðuneyta, sveitarfélaga, sérvefja og opinberra hlutafélaga. Þetta er í þriðja sinn sem úttekt af þessu tagi er gerð en þær hafa áður farið fram árin 2005 og 2007.