23 maí 2023
Niðurstöður um úthlutun á WTO tollkvóta á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið 1. júlí 2023 til 30. júní 2024
Föstudaginn 12. maí 2023 rann út umsóknarfrestur um tollkvóta vegna innflutnings á nauta-, svína-, kinda-, geita- og alifuglakjöti, unnum kjötvörum, smjöri og ostum og eggjum á grundvelli reglugerðar nr. 337/2023, fyrir tímabilið 1. júlí 2023 til 30. júní 2024.