07 júlí 2014
Fundað með aðstoðarutanríkisráðherra Japan
<p>Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem er og starfandi utanríkisráðherra, átti í dag fund með Takao Makino, aðstoðarutanríkisráðherra Japan. Ræddu ráðherrarnir náin tengsl ríkjanna og með hvaða hætti mætti efla þau enn frekar. </p>