17 mars 2009
Fjármálaráðherra skipar umsjónaraðila
<p>Fjármálaráðherra hefur að tillögu Fjármálaeftirlitsins skipað Íslenska lífeyrissjóðnum, Lífeyrissjóði Eimskipafélags Íslands, Lífeyrissjóði Tannlæknafélags Íslands, Eftirlaunasjóði FÍA og Kili lífeyrissjóði umsjónaraðila sbr. 1. mgr. 46. gr. laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Þessir lífeyrissjóðir eru í reksti og eignastýringu Landsbankans.</p>