30 nóvember 2016
200 börn deyja á dag, segir Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna
<strong>Hálf milljón barna í Nígeríu er í lífshættu vegna
vannæringar og stór hluti þeirra gæti látið lífið á næstu mánuðum
berist ekki hjálp. Fleiri en 200 börn látast nú á dag á svæðinu. Þetta
kemur fram í ákalli UNICEF á Íslandi sem stendur fyrir neyðarsöfnun
vegna hörmungarástandsins í Nígeríu og nágrannaríkjunum.</strong>