28 apríl 2010Kennslu- og ökuprófamiðstöð opnuð
Ökukennarafélag Íslands og Frumherji opnuðu í dag formlega kennslu- og ökuprófamiðstöð á Kirkjusandi í Reykjavík, þar sem áður var athafnasvæði Strætó bs. Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, sagði við það tækifæri að með því væri stigið mikilvægt skref í átt til enn betri ökukennslu.

28 apríl 2010Kostnaðarsöm töf á lausn Icesave
Ætla má að tafir á Icesave-viðræðum og framgangi efnhagsáætlunar íslenskra stjórnvalda hafi leitt til þess að samdráttur ársins 2010 verði nærri 2% meiri en áður var spáð. Það svarar til 30 milljarða króna og 1-2% meira atvinnuleysi en annars hefði verið.

28 apríl 2010Afhending trúnaðarbréfs í HollandiStefán Haukur Jóhannesson afhenti í dag, 28. apríl, Beatrix Hollandsdrottningu trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands
28 apríl 2010Mælingar á svifryki efldar vegna eldgossins í Eyjafjallajökli
Sex milljónum króna verður varið til kaupa og uppsetningar á sjálfvirkum mæli til að mæla svifryk á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli. Tillaga Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra þess efnis var samþykkt á fundi ríkisstjórnarinnar í gær.

27 apríl 2010Lög um fjárhagsskil sveitarfélaga samþykkt
Alþingi samþykkti í dag breytingu á sveitarstjórnarlögum nr. 45/1998 sem kveða á um að samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra sé heimilt að setja reglugerð sem mæli fyrir um ársfjórðungsleg skil sveitarfélaga á upplýsingum úr bókhaldi sínu og reikningsskilum.

27 apríl 2010Atvinnumiðstöð fyrir unga atvinnuleitendur í Kópavogi
Atvinnumiðstöð Kópavogs, þróunarverkefni á sviði staðbundinna vinnumarkaðsúrræða fyrir ungt fólk, verður opnuð í Kópavogi í byrjun næsta mánaðar. Samningur um þetta var undirritaður í gær.

27 apríl 2010Fundargerð stýrihóps um velferðarvakt frá 27. apríl 2010
28. fundur haldinn í félags- og tryggingamálaráðuneyti þriðjudaginn 27. apríl 2010, kl. 14.00–16.00.

27 apríl 2010Nr. 26/2010 - Tillaga formanns og varaformanns AlþjóðahvalveiðiráðsinsÁ ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins á Madeira síðastliðið sumar var hópi tólf ríkja falið að leita málamiðlunarsamkomulags innan ráðsins en það hefur verið nánast óstarfhæft á undanförnum árum vegna togstreitu milli ríkja sem hlynnt eru sjálfbærum hvalveiðum og ríkja sem eru andvíg hvalveiðum.
26 apríl 2010Samstarfssamningur um verknám á Austurlandi
Síðastliðinn föstudag var undirritaður samningur milli Háskólans á Akureyri og Heilbrigðisstofnunar Austurlands um samvinnu við verknám nemenda á heilbrigðisvísindasviði HA. Annars vegar er um að ræða klínískt nám í hjúkrunarfræði og hins vegar vettvangsnám í iðjuþjálfun.

26 apríl 2010Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra veitti Kvennaskólanum í Reykjavík viðurkenninguKatrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra veitti Kvennaskólanum í Reykjavík viðurkenningu sem Íþróttaskóli ársins 2010.
26 apríl 2010Afhending trúnaðarbréfs í Slóvakíu
Þann 20. apríl afhenti Stefán Skjaldarson, sendiherra, Ivan Gasparovic, forseta Slóvakíu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Slóvakíu, með aðsetur í Vín.