14 júní 2017
Drög að breytingum á sveitarstjórnarlögum til umsagnar
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að lagafrumvarpi um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011, er varðar fjölda borgarfulltrúa í Reykjavík. Frumvarpið var lagt fyrir Alþingi á síðasta þingi en ekki náðist að ljúka afgreiðslu þess þá. Umsagnir má senda ráðuneytinu á netfangið [email protected] til 14. júlí næstkomandi.