12 apríl 2022
Ráðherra úthlutar 81,5 milljónum króna í styrki úr Lýðheilsusjóði
Hinn 11. apríl fór fram athöfn í Tjarnarsal Ráðhússins í Reykjavík þar sem heilbrigðisráðherra úthlutaði styrkjum úr Lýðheilsusjóði, að fengnum tillögum stjórnar Lýðheilsusjóðs. Í ár var styrkjum úr Lýðheilsusjóði úthlutað til fjölbreyttra verkefna á sviði geðræktar, næringar, kynheilbrigðis, hreyfingar og íþróttaiðkunar, áfengis-, vímu- og tóbaksvarna auk almennrar heilsueflingar.…