22 desember 2011
Breytingar á þátttöku fólks í kostnaði vegna tæknifrjóvgunar
<p>Frá næstu áramótum munu barnlaus pör og einhleypar barnlausar konur greiða að fullu kostnað vegna fyrstu meðferðar við tæknifrjóvgun. Þurfi fólk á fleiri meðferðum að halda greiða Sjúkratryggingar Íslands sem nemur 65% kostnaðar samkvæmt gjaldskrá stofnunarinnar fyrir aðra, þriðju og fjórðu meðferð. </p>