11 apríl 2014
Samið við
Mannréttindastofnun HÍ um rafræna útgáfu á dómareifunum
<p>Innanríkisráðuneytið hefur samið við Mannréttindastofnun Háskóla Íslands um styrk til rafrænnar útgáfu á dómareifunum Mannréttindadómstóls Evrópu. Undir samninginn skrifuðu í dag þær Oddný Mjöll Arnardóttir, fyrir hönd Mannréttindastofnunar, og Ragnhildur Hjaltadóttir, fyrir hönd innanríkisráðuneytisins.</p>