29 maí 2012
Afhending trúnaðarbréfs í Laos og Tælandi
<p>Þann 22. maí s.l. afhenti Kristín A. Árnadóttir forseta Laos, Choummaly Sayasone, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands gagnvart Laos með aðsetri í Peking. Þann 7. maí s.l. afhenti hún krónprinsi Tælands, Maha Vajiralongkorn, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands gagnvart Tælandi með aðsetri í Peking.</p>