14 mars 2019
Forsætisráðherra fundaði með fyrrverandi forseta Írlands og Mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, átti fund með Mary Robinson, fyrrverandi forseta Írlands og Mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, í tengslum við fund kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir í New York í Bandaríkjunum.