18 janúar 2018
Ræddi öryggisáskoranir á norðurslóðum hjá Alþjóðlegu friðarrannsóknarstofnuninni
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, gerði öryggisáskoranir á norðurslóðum að umtalsefni í ávarpi sem hann flutti í Alþjóðlegu friðarrannsóknarstofnuninni í Stokkhólmi (SIPRI) í dag. Ráðherra gerði grein fyrir þeim breytingum sem orðið hefðu í öryggismálum á Norður-Atlantshafi á undanförnum árum með vaxandi umferð rússneskra herflugvéla og kafbáta, sem og viðbrögðum Atlantshafsbandalagsins