28 september 2006
Dóms- og kirkjumálaráðherra fundar um öryggismál.
Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, boðaði fimmtudaginn 28. september til þriggja funda í ráðuneyti sínu um stöðu öryggismála þjóðarinnar við brottför varnarliðsins. Fundina sátu fulltrúar Ríkislögreglustjóra, Landhelgisgæslu Íslands og Landssambands lögreglumanna.