12 júní 2018
Samgönguþing 21. júní – dagskrá og skráning
Skráning stendur yfir á samgönguþing sem haldið verður fimmtudaginn 21. júní nk. í Súlnasal Hótel Sögu kl. 13-17. Á þinginu, sem er lokaskref í samráðsferli við gerð stefnumótandi samgönguáætlunar 2019-2033, verður fjallað um áskoranir í samgöngumálum, framkvæmdir og fjármögnun, almenningssamgöngur, umferðaröryggi og hlutverk upplýsingatækninnar í framtíðarsamgöngum.