21 júní 2023
Samið um aukið fjármagn í átaksverkefni um úrbætur í aðgengismálum fyrir fatlað fólk
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, og Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka, undirrituðu í dag samkomulag um aukinn stuðning við átaksverkefni stjórnvalda og ÖBÍ um úrbætur um land allt í aðgengismálum fyrir fatlað fólk.