01 ágúst 2012
Unnið verði áhættumat og settar fram tillögur um flugvernd til frambúðar
<p>Innanríkisráðuneytinu hefur borist skýrsla Flugmálastjórnar Íslands um atvik á Keflavíkurflugvelli aðfaranótt 8. júlí þegar tveir menn komust yfir girðingu, um flugvélastæði og inn í flugvél sem beið brottfarar. Unnið verður áhættumat og lagðar fram tillögur um hvernig heppilegast sé að haga flugvernd á Keflavíkurflugvelli til frambúðar til að fyrirbyggja atvik sem þetta.</p>