17 nóvember 2011
Innanríkisráðherra flutti ávarp á hátíðarsýningu um afleiðingar vímuefnaneyslu
<p>Innanríkisráðherra, Ögmundur Jónasson, ávarpaði gesti í Þjóðleikhúsinu síðastliðið þriðjudagskvöld  en þá fór fram hátíðarsýning á forvarna- og skemmtifræðsluverkinu Hvað ef? Sýningin er ætluð unglingum og fjallar um afleiðingar áfengis- og vímuefnaneyslu.</p>