07 apríl 2011
Tæplega 11% lækkun lyfjakostnaðar á einu ári
<p>Lyfjakostnaður Sjúkratrygginga Íslands lækkaði um rúmlega 1,1 milljarð króna árið 2010 frá fyrra ári, eða um 10,7%, þrátt fyrir að lyfjanotkun hafi aukist um tæp 6%. Meginástæðan er aukin notkun ódýrari lyfja í kjölfar breytinga á reglum um greiðsluþátttöku.</p>