23 september 2016
Elín Pálsdóttir sæmd heiðursmerki Sambands íslenskra sveitarfélaga
<p>Samband íslenskra sveitarfélaga heiðraði í gær Elínu
Pálsdóttur, fráfarandi forstöðumann Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, fyrir langt og
farsælt starf hennar að sveitarstjórnarmálum. Var henni veitt heiðursmerki
sambandsins og afhenti Halldór Halldórsson formaður Elínu merkið á
fjármálaráðstefnu sambandsins sem lauk í Reykjavík í dag.</p>