20 júní 2006
Lögreglu- og öryggismál á norrænum ráðherrafundi
Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, sat fund dómsmálaráðherrar Norðurlanda í Utstein-klaustri skammt frá Stavanger í Noregi í dag. Ráðherra gerði fundarmönnum m.a. grein fyrir breytingum á skipan lögreglumála og auknum verkefnum dóms- og kirkjumálaráðuneytisins og stofnana á þess vegum, lögreglu, landhelgisgæslu og björgunarmiðstöðvar vegna brottfarar varnarliðsins.