05 nóvember 2013
Vel heppnuð fræðsluþing Vitundarvakningar um land allt
<p>Lokið er röð fræðsluþinga, sem haldin voru í október um land allt á vegum Vitundarvakningar um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi. Þátttaka var góð og sátu þau um 830 manns. Fyrsta fræðsluþingið var á Sauðárkróki 1. október þar sem um 120 þátttakendur voru mættir. Síðasta fræðsluþingið var haldið í Reykjavík með um 150 þátttakendum.</p>