21 nóvember 2001
Greiðsluafkoma ríkissjóðs fyrstu tíu mánuði ársins 2001. Greinargerð 21. nóvember 2001
Fyrstu tíu mánuði ársins var handbært fé frá rekstri neikvætt um 1,2 milljarða króna, samanborið við 10,4 milljarða króna jákvæða stöðu í fyrra. Heildartekjur ríkissjóðs hækka um tæplega 12,5 milljarða króna frá sama tíma í fyrra, einkum vegna aukinnar innheimtu tekjuskatta.