23 júní 2016
Punktar varðandi aflaráðgjöf og ákvörðun um heildarafla fyrir fiskveiðiárið 2016-2017
<p>Þann 8. júní 2016, kynnti Hafrannsóknastofnun ráðgjöf sína um heildarafla nytjastofna á fiskveiðiárinu 2016-2017. Í kjölfarið átti ráðherra samráðsfundi með fulltrúum frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Landssambandi smábátaeigenda og samtökum sjómanna, þar sem leitað var eftir viðhorfum þessara aðila til ráðgjafarinnar.</p>