26 ágúst 2004
Nr. 6/2004 - Skipan í embætti rektors Landbúnaðarháskóla Íslands
Landbúnaðarráðherra hefur í dag ákveðið að skipa dr. Ágúst Sigurðsson í stöðu rektors Landbúnaðarháskóla Íslands til næstu fimm ára. Landbúnaðarháskóli Íslands verður til úr sameiningu Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri, Garðyrkjuskóla ríkisins að Reykjum og Rannsóknastofnun landbúnaðarins frá og með 1. janúar 2005, skv. lögum nr. 71/2004 um breytingu á lögum um búnaðarfræðslu nr. 57/1999.