20 mars 2009
Úthlutanir úr starfsmenntasjóði
Verkefnið Hannað í málm, sem skapar atvinnugrundvöll næsta hálfa árið fyrir þrjá hópa hönnuða og þrjú málmiðnaðarfyrirtæki, hlaut í dag hæstu úthlutunina úr starfsmenntasjóði ráðuneytisins eða 1,7 milljón króna. Úthlutað var til 35 verkefna að þessu sinni alls um 35 milljónum króna.