31 maí 2023Nr. 329/2023 ÚrskurðurÁkvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Grikklands er staðfest.
31 maí 2023Rúmlega 1730 skömmtum af naloxón neyðarlyfi dreiftLyf á nefúðaformi sem inniheldur naloxón getur reynst lífsbjargandi sem fyrstu viðbrögð við ofskömmtun ópíóíða. Breytt fyrirkomulag við afhendingu lyfsins hefur bætt til muna aðgengi að lyfinu um allt land, einstaklingum að kostnaðarlausu.
31 maí 2023Utanríkisráðherra skipar í útflutnings- og markaðsráðUtanríkisráðherra hefur skipað fulltrúa til setu í útflutnings- og markaðsráð. Samkvæmt lögum um Íslandsstofu skipar utanríkisráðherra 31 fulltrúa í ráðið til fjögurra ára í senn.
30 maí 2023Funduðu með Justin Trudeau í KanadaForseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, Eliza Reid forsetafrú, og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, héldu ásamt íslenskri sendinefnd í opinbera heimsókn til Kanada um helgina.
30 maí 2023Ríkisstjórnin styrkir verkefni um menningarsamstarf við ÚkraínuRíkisstjórnin samþykkti á fundi sínum sl. föstudag að veita 5 milljónir króna af ráðstöfunarfé sínu til Háskóla Íslands vegna verkefnis um menningarsamstarf við Úkraínu. Þá hyggst utanríkisráðuneytið styrkja verkefnið um 4 milljónir króna.
30 maí 2023Á réttri leið - ráðstefna um öryggi í samgöngumÁ réttri leið, ráðstefna um öryggi í samgöngum, verður haldin þriðjudaginn 6. júní nk. frá kl. 13-16 í Veröld – húsi Vigdísar.
30 maí 2023Norræn ráðstefna í Hörpu: Samsköpun um betri framtíð í þjónustu við fatlað fólkFélags- og vinnumarkaðsráðuneytið stendur fyrir norrænni ráðstefnunni í Hörpu fimmtudaginn 1. júní nk. þar sem fjallað verður um þær áskoranir sem fatlað fólk stendur frammi fyrir þegar horft er til framtíðar. Fullt er á ráðstefnuna en hægt verður að fylgjast með henni í beinu streymi á vef Stjórnarráðsins.
30 maí 20231144/2023. Úrskurður frá 22. maí 2023Kærð var afgreiðsla Háskólans á Bifröst á beiðni kæranda um aðgang að verkefni sem unnið hefði verið við skólann. Fyrir lá að kærandi hefði skjalið þegar undir höndum, að undanskilinni forsíðu þess þar sem fram komu upplýsingar um það hverjir hefðu unnið verkefnið.…