17 maí 2016
Tillaga að framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum lögð fyrir Alþingi
<p>Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára. Þetta er í sjötta sinn sem slík áætlun er lögð fram en markmið hennar er að tilgreina þau verkefni sem brýnust eru talin á sviði kynjajafnréttis.</p>