05 ágúst 2004Sameining sveitarfélaga ákveðin á HéraðiSveitarstjórnir sveitarfélaganna þriggja, Austur-Héraðs, Fellahrepps og Norður-Héraðs, hafa samþykkt sameiningu sveitarfélaganna eftir tvær umræður í sveitarstjórnum.
05 ágúst 2004Vefrit fjármálaráðuneytisins 5. ágúst 2004Afkoma ríkissjóðs janúar - maí 2004 - Fjármagnstekjur vaxa hratt - Innflutningur í júlí 2004.
05 ágúst 2004Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar - maí. Greinargerð: 5. ágúst 2004Nú liggja fyrir tölur um greiðsluafkomu ríkissjóðs fyrstu fimm mánuði ársins. Heildartekjur ríkissjóðs námu 109,2 milljörðum króna fyrstu fimm mánuði ársins og hækkuðu um 0,5 milljarða eða 0,4% hækkun frá árinu á undan
04 ágúst 2004A-179/2004 Úrskurður frá 4. ágúst 2004Kærð var synjun sýslumannsins í Vestmannaeyjum um að veita aðgang að upplýsingum um tilboð sem borist höfðu í auglýsingar í bæjarblöðunum. Tilboð. Mikilvægir fjárhags- og viðskiptahagsmunir fyrirtækja. Samkeppnissjónarmið. Aðgangur veittur.
04 ágúst 2004A-184/2004 Úrskurður frá 4. ágúst 2004Kærð var synjun Ríkisútvarpsins um að veita aðgang að gögnum sem lögð voru fram á fundi útvarpsráðs 17. maí 2004. Fundargerðir. Vinnugögn. Samkeppnisstaða opinberrar stofnunar. Mikilvægir almannahagsmunir. Upplýsingar sem ekki verður aflað annars staðar frá. Aðgangur veittur að hluta.
04 ágúst 2004Fundur forsætisráðherra NorðurlandaSunnudaginn 8. ágúst nk. verður haldinn fundur forsætisráðherra Norðurlanda í Sveinbjarnargerði við Eyjafjörð. Á fundinum sem hefst kl. 17:00 verður fjallað um norræn málefni, Evrópumál og önnur alþjóðamál.
04 ágúst 2004Afhending trúnaðarbréfsHjálmar W. Hannesson, sendiherra og fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, afhenti 2. ágúst, Hipólito Mejía, forseta Dóminíska lýðveldisins, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands. <p></p>
03 ágúst 2004Fréttir af líðan forsætisráðherraEins og fram hefur komið lagðist Davíð Oddsson forsætisráðherra inn á Landspítala-háskólasjúkrahús að morgni 21. júlí sl. vegna gallblöðrubólgu. Við rannsókn kom jafnframt í ljós staðbundið æxli í hægra nýra hans.
03 ágúst 2004Breyting á reglugerð um bókhald og ársreikninga sveitarfélagaReglugerð um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga, nr. 944/2000, hefur verið breytt með reglugerð nr. 561/2004.
03 ágúst 2004Prime Ministers OfficePress release on the condition of the Prime MinisterAs has been stated before, Prime Minister Davíð Oddsson was admitted to the National University Hospital on the morning of 21 July last with inflammation of the gall bladder. Tests revealed in addition a localised tumour in the right kidney.