25 febrúar 2013
Menningarlandið 2013 – ráðstefna um framkvæmd og framtíð menningarsamninga
Atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti,
Samband íslenskra sveitarfélaga, og Menningarráð Suðurlands í samstarfi
við önnur menningarráð landsbyggðarinnar boða til ráðstefnunnar
Menningarlandið 2013 – framkvæmd og framtíð menningarsamninga, sem fram
fer á Icelandair Hótel Klaustri 11. og 12. apríl.