08 desember 2006
Samþykkt frumvarp um réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn tímabundið til Íslands og starfskjör starfsmanna þeirra
Ríkisstjórnin samþykkti í dag frumvarp Magnúsar Stefánssonar félagsmálaráðherra um réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn tímabundið til Íslands og starfskjör starfsmanna þeirra. „Nauðsynlegt er að herða tökin, skerpa ábyrgð fyrirtækja og treysta innviði vinnumarkaðarins,“ segir félagsmálaráðherra.