11 september 2006
Umhverfisráðuneytið og HR undirrita samstarfssamning
<p>Umhverfisráðuneytið og Háskólinn í Reykjavík gerðu nýlega með sér starfsnámssamning og munu nemendur lagadeildar skólans í kjölfarið stunda starfsnám í ráðuneytinu. Sigríður Auður Arnardóttir, skrifstofustjóri í umhverfisráðuneytinu og Sigurður Tómas Magnússon, sérfræðingur við lagadeild HR, undirrituðu samninginn.</p>