01 mars 2013
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar erlendis hefst 4. mars
<p>Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna alþingiskosninga 27. apríl 2013 hefst 4. mars nk., samkvæmt frétt á vef utanríkisráðuneytisins. Fer hún fram í öllum sendiráðum Íslands, aðalræðisskrifstofum í New York, Winnipeg og Þórshöfn í Færeyjum. Einnig er unnt að kjósa utan kjörfundar eftir samkomulagi hjá kjörræðismönnum Íslands.</p>