22 mars 2023
Beint streymi frá norrænni ráðstefnu um geðheilbrigðismál fimmtudaginn 23. mars
Heilbrigðisráðherrar Norðurlandaþjóðanna ræða um áskoranir á sviði geðheilbrigðismála og leiðir til að takast á við þær á árangursríkan hátt á norrænni ráðstefnu um geðheilbrigðismál í Hörpu fimmtudaginn 23. mars. Þar koma einnig fram þekktir fyrirlesarar, íslenskir og erlendir og taka þátt í vinnu- og málstofum um áskoranir, strauma og stefnur sem snúa að geðheilbrigði og geðheilbrigðisþjónustu.…