30 ágúst 2017
Rúmir sjö milljarðar á síðasta ári til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu
<p>Endanlegar tölur um framlög til alþjóðlegrar þróunaramvinnu Íslands á síðasta ári liggja nú fyrir. Árið 2016 námu framlögin 7,1 milljarði kr. sem svarar til 0,29% af vergum þjóðartekjum (VÞT). Framlög til flóttamanna og hælisleitenda hækkuðu um tæpa 1,3 milljarða kr. milli ára. Til samanburðar námu framlögin tæplega 5,3 milljörðum kr. á árinu 2015 eða 0,24% af VÞT.</p>