13 desember 2018
Sjö sveitarfélög taka þátt í tilraunaverkefni um húsnæðisuppbyggingu á landsbyggðinni
Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, kynnti í dag á fundi á Húsavík þau sjö sveitarfélög sem verða fyrst til að taka þátt í tilraunaverkefni um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á landsbyggðinni. Meðal fyrirmynda að verkefninu eru lausnir frá Noregi en stórt hlutfall sveitarfélaga þar hefur tekist á við sambærilegar áskoranir og íslensk sveitarfélög á landsbyggðinni.