24 júlí 2008
Leyfi ráðuneytisstjóra framlengt
Þorsteinn Geirsson, ráðuneytisstjóri dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, hefur óskað eftir framlengingu á leyfi frá störfum til 1. október 2008 vegna veikinda. Setning Rögnu Árnadóttur, skrifstofustjóra lagaskrifstofu ráðuneytisins, í embætti ráðuneytisstjóra hefur verið framlengd til þess tíma.